HH kæra alla stjórnendur bankanna til lögreglunnar 16. febrúar 2012 08:25 Andrea Jóhanna Ólafsdóttir formaður Hagmunasamtaka heimilanna.
Hagsmunasamtök heimilanna (HH) hafa lagt fram kæru til efnahagsbrotadeildar á hendur öllum stjórnendum og bankaráðum bankanna frá árinu 2001-2012 fyrir brot á stjórnarskrá, almennum hegningarlögum, vaxtalögum, lögum um samningsgerð, lögum um hlutafélög og fyrir að vanrækja eftirlitsskyldu sína. Fjallað er um málið á vefsíðu samtakanna. Þar segir að í fyrsta lagi eru bankastjórnendur sem voru við stjórn frá 2001- 2008 kærðir fyrir að veita gengistryggð lán. Má leiða líkur að því að hinar ólöglegu lánveitingar hafi jafnvel farið fram vísvitandi, í það minnsta gerðu Samtök banka- og verðbréfafyrirtækja umsögn um frumvarp áður en það varð að lögum og vöruðu við því að ef frumvarpið yrði að lögum yrði ekki heimilt að gengistryggja lán. Jafnframt má geta þess að Verslunarráð Íslands og Samtök atvinnulífsins sendu einnig inn umsagnir áður en frumvarpið varð að lögum þar sem koma fram varnaðarorð í þessa sömu veru. Hæstiréttur hefur nú staðfest að slíkar lánveitingar brjóta gegn lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38 frá árinu 2001. Eftir setningu neyðarlaganna árið 2008 hafa nýjar lánveitingar af þessu tagi lagst af, en þó er heimilt að veita sannanlega erlent lán sem er greitt út í erlendum gjaldmiðli og innheimt í erlendum gjaldmiðli. Innheimta á ólögmætum gengistryggðum lánum hefur þó haldið áfram á forsendum sem HH telja að stríði gegn samningalögum, vaxtalögum, lögum um neytendalán og stjórnarskrá. Í öðru lagi beinist því kæran einnig gegn þeim bankastjórnendum sem setið hafa í stjórnum frá því bankarnir hófu innheimtu á endurútreiknuðum ólögmætum lánum. Er það mat samtakanna að bankarnir hafi gerst brotlegir við lög og gengið gegn eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar með því að vaxtavaxtareikna lánin annars vegar og hins vegar með því að reikna hærri vexti afturvirkt á greidda gjalddaga allt frá lántökudegi í stað þess að miða við setningu laga nr. 151/2010. Í dómum Hæstaréttar hefur gengistryggingin verið dæmd ólögleg og mælst til að nota óverðtryggða vexti Seðlabankans á ógreiddar eftirstöðvar lána, en ekki á greidda gjalddaga. Í þriðja lagi telja Hagsmunasamtök heimilanna að bönkunum sé óheimilt að innheimta vexti fyrir tímabil áður en þeir eignuðust kröfuna, og er það skilningur samtakanna að eigandi skuldabréfs eigi eingöngu kröfurétt á vexti frá þeim degi þegar hann eignast kröfuna. Þessi hluti kærunnar á því við um stjórnendur nýju bankanna þar sem bankarnir eigi ekkert tilkall til vaxtagreiðslna fyrir þann tíma þegar þeir urðu löglegir eigendur skuldabréfa. Gamlir eigendur þeirra hafa þegar innheimt vaxtagreiðslur og greiðslur inn á höfuðstól sem að mati samtakanna eiga að standa í íslenskum krónum.
Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira