Viðskipti innlent

Tvöfalda útflutning á skyri til Bandaríkjanna

Mjólkursamsalan stefnir að því að tvöfalda útflutning á skyri til Bandaríkjanna.

Samið hefur verið við dreifingarfyrirtækið Gourmet Guru Inc. í New York og verður skyrinu dreift í um það bil þúsund verslanir á New York svæðinu á næstu mánuðum.

Skyrútflutningurinn nemur nú 120 tonnum á ári, eða 720 þúsund dósum, og er stefnt að þvi að tvöfalda það magn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×