Viðskipti innlent

Eignir lífeyrissjóðanna komnar í tæplega 2.100 milljarða

Hrein eign lífeyrissjóða nam tæpum 2.100 milljörðum kr. í lok desember s.l. og hafði hækkað um 18,7 milljarða kr. frá lokum nóvember eða um 0,9%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans. Þar segir að útlán og verðbréfaeign hækkuðu um 9,3 milljarða kr. á milli mánaða. Þar af hækkaði innlend verðbréfaeign um 3 milljarða kr. og nam um 1.519 millljörðum kr. í lok desember.

Erlend verðbréfaeign hækkaði um 6 milljarða kr. og nam 470 milljörðum kr. í lok desember. Bankainnstæður hækkuðu um 6,3 milljarða kr. í desember og námu því 158 milljörðum kr. í lok árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×