Þrotabú Samson krefst 518 milljóna vegna Árvakursviðskipta 30. janúar 2012 17:41 Björgólfur Guðmundsson, var eigandi Samson ásamt syni sínum Björgólfi Thor Björgólfssyni. Björgólfur eldri er nú gjaldþrota.
Tekist var á um þá kröfu þrotabús Samson, fjárfestingafélags Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, að rifta kaupum á 16,7 prósenta hlut í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, á þeim grundvelli að um gjafagjörning hafi verið að ræða, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málið byggir á því að Samson hafi keypt 16,7 prósenta hlut í eigu félagsins MGM, dótturfélags Straums fjárfestingabanka, á miklu yfirverði. Kaupin fóru fram 25. júní 2008 og greiddi Samson 822 milljónir króna fyrir hlutinn. Fyrir liggur í málinu mat Jóhanns Unnsteinssonar endurskoðanda, um að fyrrnefndur hlutur hafi í besta falli verið 304 milljóna króna virði á þeim tíma þegar kaupin fóru fram. Straumur fjárfestingabanki, sem var að stærstum hluta í eigu Björgólfsfeðga, fjármagnaði kaup Samson með lánum, að því er fram kom fyrir dómi í dag. Þannig fjármagnaði Straumur kaup Samson á bréfunum í Árvakri sem voru í eigu bankans sjálfs. Þrotabú Samson fer fram á að fá mismuninn á kaupverðinu og matsverðinu greiddan frá Straumi (ALMC), eða 518 milljónir króna. Því hafnar bankinn alfarið og ítrekaði Gísli Guðni Hall hrl., lögmaður Straums, þá kröfu fyrir dómi í dag. Fyrir dóminn voru kölluð nokkur vitni, þar á meðal fyrrum starfsmenn Straums sem komu að viðskiptunum. Þá var tekin skýrsla af Sigþóri Sigmarssyni, framkvæmdastjóra Novator ehf., og var hann spurður út í fyrrnefnd viðskipti, og þá einkum tölvupósta sem hann sendi starfsmönnum Straums í tengslum við kaupin. Hann sagði kaupin hafa verið fullkomlega eðlileg og verðmatið á bréfunum hefði verið talið rétt á þeim tíma er viðskiptin fóru fram. Dómur í málinu verður kveðinn upp innan fjögurra vikna lögum samkvæmt.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira