Allt að 90% taka óverðtryggð lán 30. janúar 2012 18:35
Allt að níutíu prósent þeirra sem taka fasteignalán hjá bönkunum um þessar mundir kjósa að taka óverðtryggð lán. Lífeyrissjóðirnir eru ekki farnir að bjóða upp á óverðtryggð lán. Íslenskum húsnæðiskaupendum hefur í raun ekki staðið annað til boða en verðtryggð húsnæðislán síðustu áratugi, lán sem hækka í takt við verðhækkanir á mat, flíkum, vörum og þjónustu í þjóðfélaginu. Síðustu rúm 20 ár hefur verðbólga á Íslandi verið að meðtali 5,8% á ári. Með slíka verðbólgu tekur það skuldara, sem tekur 10 milljónir að láni, vel yfir 30 ár að komast aftur niðurfyrir 10 milljónir. Í dag bjóða allir stóru bankarnir upp á raunverulegan óverðtryggðan valkost - lán með föstum vöxtum sem eru jafnvel lægri en verðbólgan sem í dag mælist 6,5%. Íslandsbanki reið á vaðið og hefur boðið upp á óverðtryggð húsnæðislán frá nóvember 2009. Síðan þá hafa 70% nýrra lántaka bankans kosið að taka óverðtryggt húsnæðislán. Örstutt er síðan Landsbankinn fór að bjóða slík lán, eða í október, fá heimili eru því á bak við þeirra tölur. Engu að síður, af þeim sem tekið hafa ný lán hjá bankanum hafa 84% kosið óverðtryggð lán en 16 prósent verðtryggð. Viðskiptavinir Arionbanka skera sig ekki úr, bankinn hóf að lána óverðtryggð húsnæðislán í haust - síðan þá hafa 90% viðskiptavina Arionbanka tekið óverðtryggð fasteignalán - og aðeins 10% verðtryggð.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira