Viðskipti innlent

Ísland í 9. sæti yfir vinsamlegt viðskipaumhverfi þjóða

Ísland er í níunda sæti þjóða heimsins yfir vinsamlegt viðskiptaumhverfi, það er hve auðvelt er að stofna og reka fyrirtæki.

Þetta kemur fram í nýjum lista sem Alþjóðabankinn gefur út árlega. Listinn tekur mið af 10 atriðum þar á meðal hve auðvelt er að fá leyfi fyrir fyrirtækjarekstri, hve auðvelt er að fá lánsfé til rekstursins og hve auðvelt er að útvega rafmagn eða orku til hans.

Singapore er í efsta sæti listans og þar á eftir kemur Hong Kong. Af Norðurlöndunum eru Danmörk og Noregur fyrir ofan Ísland eða í sjötta og sjöunda sæti listans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×