Viðskipti innlent

Kaupmáttur jókst um 3,7% á liðnu ári

Vísitala kaupmáttar launa í desember síðastliðnum var 111 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,7%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir einnig að launavísitala í desember var rúm 418 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,2%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×