Viðskipti innlent

Skuldatryggingaálag Íslands stöðugra en víða í Evrópu

Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins hefur verið mun stöðugra en hjá flestum öðrum ríkjum Vestur Evrópu á undanförnu ári.

Álag Íslands stendur nú í 301 punkti eða ríflega 3%, sem er álíka og það var í þessari viku fyrir ári síðan þegar það mældist 308 punktar.

Aðra sögu er að segja frá flest öllum Vestur Evrópuríkjum að því er segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar kemur fram að meðalálagið í Vestur Evrópu sé nú rúmlega 600 punktar en var rúmlega 200 punktar fyrir ári síðan hjá þeim 17 ríkjum samanburðurinn nær til. Það hefur því nánast þrefaldast á liðnu ári meðan Ísland hefur haldið sinni stöðu. Hér skal tekið fram að Grikkland bjagar nokkuð meðaltalið en álag þess ríkis er tæplega 6.000 punktar.

Ef Grikkland er tekið út nemur meðalálagið 285 punktum og er Ísland því nálægt meðaltalinu.

Fram kemur að jafnvel hjá þeim löndum sem talin eru traustust hefur álagið rokið upp. Noregur er með lægsta skuldatryggingaálag allra ríkja í heiminum en það hefur samt nær tvöfaldast frá í fyrra og er komið í 42 punkta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×