Áhugi á Drekasvæði veltur á árangri í Noregshafi 23. janúar 2012 20:00
Nýfundnar olíulindir í Barentshafi og Norðursjó draga úr áhuga á Drekasvæði Íslendinga, að mati helsta sérfræðings Noregs um olíuiðnaðinn. Hann telur möguleika Íslendinga ráðast af því hversu vel gangi að finna olíu í vesturhluta Noregshafs en þar eru nokkrir helstu olíurisar heims nú að leita. Hans Henrik Ramm, einn kunnasti ráðgjafi Norðmanna um olíumál, hefur fylgst grannt með Drekaútboðum Íslendinga og taldi fyrir tveimur árum að íslensk stjórnvöld hefðu sjálf átt stóran þátt í að klúðra fyrsta útboðinu með óskynsamlegri skattalöggjöf. Nú þegar tíu vikur eru í að frestur renni út í útboði númer tvö segir Hans Henrik í samtali við Stöð 2 að Íslendingar hafi ástæðu til bjartsýni í olíumálum þegar horft sé til lengri tíma en telur meiri óvissu ríkja um útboðið nú. Hann segir jákvætt að vilji til að fjárfesta sé miklu meiri núna, Norðmenn hafi opnað Jan Mayen-svæðið til rannsókna og upplýsingar frá Olíustofnun Noregs gefi til kynna að það líti betur út en búist var við. Á hinn bóginn séu olíufélög í Noregi drekkhlaðin verkefnum eftir að nýjar olíulindir fundust í Barentshafi og Norðursjó. Barentshafið sé heitasta svæðið og lítið rætt um Jan Mayen og Ísland. Hans Henrik nefnir að olíufélögin tvö sem sóttu um Drekasvæðið fyrir tveimur árum, Sagex og Aker Exploration, hafi nú bæði sameinast öðrum félögum, sem hafi ærin verkefni í Barentshafi eða starfa eingöngu á norska landgrunninu. Þá sé Statoil í gríðarstórum verkefnum og telji sig kannski hafa næga tíma gagnvart Jan Mayen meðan aðrir meldi sig ekki. Statoil muni þó fyrr eða síðar vilja tryggja stöðu sína á íslenska Drekasvæðinu, sérstaklega ef aðrir sýni því áhuga, að mati Hans Henrik. Umsókn frá öðrum olíurisa muni örugglega kveikja þeirra áhuga. Möguleika Íslendinga telur Hans Henrik Ramm helst felast í vaxandi áhuga olíufélaga á vesturhluta Noregshafs. Hann bendir á að jarðfræðin á Drekasvæðinu sé sú sama, hraunlög sem erfitt hafi verið að sjá í gegnum, en virðist engu að síður lofa góðu. Olíurisar á borð við ExxonMobil, Chevron, Statoil og BG séu komnir með leitarleyfi í vestanverðu Noregshafi. Olíustofnun Noregs telji að þar fari vinnsla í gang og ef það gerist muni þessi fyrirtæki einnig horfa vestar í átt til Drekans og Jan Mayen. Það muni þó taka tíma og telur Hans Henrik að þótt olíumálaráðherra Noregs hyggist vorið 2013 fá heimild norska Stórþingsins til að opna Jan Mayen-svæðið til leitar verði vart farið í útboð þar fyrr en í fyrsta lagi 2015 eða 2016.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira