Seðlabankinn fellir niður kröfur á stofnfjárhafa 23. janúar 2012 20:06 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Stjórn Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. (ESÍ) hefur ákveðið að fella niður kröfur á stofnfjárhafa í Sparisjóði Svarfdæla sem ESÍ á í gegnum Hildu hf. Umræddar kröfur eru lán til rúmlega 100 aðila sem veitt voru af Saga Fjárfestingarbanka í árslok 2007 í tengslum við stofnfjáraukningu í Sparisjóði Svarfdæla. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands. Lánin voru síðar seld yfir í systurfélags bankans, Hildu hf. ESÍ yfirtók Hildu á miðju síðasta ári og hefur frá þeim tíma farið með forræði á ofangreindum lánum. „Nú hafa verið höfðuð 96 dómsmál á hendur Hildu þar sem gerðar eru þær kröfur að lánin verði dæmd ólögmæt með vísan til niðurstöðu Hæstaréttar frá því 24. nóvember 2011 í svokölluðum Byr-málum og þess fordæmis sem niðurfelling Landsbankans á stofnfjáreigendalánum hjá Sparisjóði Keflavíkur skapaði," segir í fréttatilkynningu Seðlabankans. Enn fremur segir í tilkynningu Seðlabanka Íslands: „Stjórn ESÍ telur vafa ríkja hvort lögmæti krafna vegna lána til kaupa á stofnfé í Sparisjóði Svarfdæla sé að fullu sambærilegt og þær kröfur sem dæmt var um í svokölluðum Byr-málum og þær kröfur sem Landsbankinn felldi niður. Með ákvörðun sinni nú er stjórnin ekki að taka beina afstöðu til þess álitamáls en hins vegar verður ekki framhjá því litið að kröfur þessar og tilefni þeirra er að ýmsu leyti sambærileg. Eftir þá ákvörðun Landsbanka Íslands að fella niður lán sem veitt voru í tengslum við stofnfjáraukningu í mörgum sparisjóðum um líkt leyti og umrædd lán mæla sanngirnisrök með því að lánin vegna kaupa á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Svarfdæla verði felld niður. Fjárhagslegir hagsmunir Seðlabankans og ríkissjóðs til samans í þessu máli eru tiltölulega litlir og langvarandi deilur fyrir dómsstólum um þetta efni geta tafið verulega fyrir því að ríkissjóður fái til sín eign sína í Sparisjóði Svarfdæla og sett í uppnám endurskipulagningu fjármálaþjónustu á svæðinu. Það er því mat stjórnar ESÍ að almannahagsmunum sé best borgið með því að fella ofangreindar kröfur niður. Niðurfelling ofangreindra krafna er háð þeim skilyrðum að stofnfé sem lagt var að veði fyrir lánunum verði afhent Hildu/ESÍ og að fyrirhuguð kaup Landsbanka Íslands á rekstri Sparisjóðs Svarfdæla verði samþykkt af nægjanlegum fjölda stofnfjárhafa."
Mest lesið „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Leggja á 39 prósenta skatt á eignir slitabúanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira