Viðskipti innlent

Mat á seldu atvinnuhúsnæði hækkaði um 3 milljarða milli ára

Fasteignamat atvinnuhúsnæðis sem selt var í desember s.l. var þremur milljörðum króna hærra en í sama mánuði árið áður. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Hinsvegar fjölgaði samningum á milli ára í desember.

Í desember síðastliðnum var 61 kaupsamningi eða afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 69 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var tæplega 6,9 milljarðar króna en 1.656 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 30 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Til samanburðar má nefna að í desember 2010 var 71 skjali samningi og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 58 utan þess, heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var tæpir 3,9 milljarðar króna en 1.113 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 23 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.



Í desember s.l. voru 28 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá og 21 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborgarsvæðinu var 1.181 milljón króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.091 milljón króna.

Heildarupphæð samninga utan höfuðborgarsvæðisins var 749 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 472 milljónir króna. Af þessum samningum voru 13 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×