Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir iðnaðinn í landinu finna fyrir að sjávarútvegsfyrirtæki haldi nú að sér höndum í fjárfestingu.
„Það að sjávarútvegsfyrirtæki eru að fjárfesta lítið er að valda ýmsum þjónustufyrirtækjum í iðnaði miklu tjóni," sagði Orri á ráðstefnu um klasa og klasastjórnun á Hótel Nordica í morgun.
Orri sagði sjávarútveginn vera gífurlega mikilvægan fyrir efnahag landsins, og það væri nauðsynlegt að stöðugleiki einkenndi ytra umhverfi hans.
„Allt hangir þetta saman," sagði Orri, er hann ræddi um samspil sjávarútvegsins og annarra greina, m.a. innan iðnaðarins.
Óvissa í sjávarútvegi veldur vanda í iðnaði

Mest lesið



Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent


Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón
Viðskipti innlent


Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna
Viðskipti innlent

Ráðinn forstjóri Arctic Fish
Viðskipti innlent

„Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“
Viðskipti innlent

„Alltaf leiðindamál að lenda í svona“
Viðskipti erlent