Arion banki tekur yfir íbúðalánasafn þrotabús Kaupþings 24. janúar 2012 21:54
Arion banki og skilanefnd og slitastjórn Kaupþings gerðu nýverið með sér samkomulag um kaup Arion banka á íbúðalánasafni sem verið hefur í sérstökum sjóði í eigu þrotabús Kaupþings. Samkomulagið tekur einnig til fjármögnunar lánanna með yfirtöku sértryggðra skuldabréfa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Við stofnun Arion banka fyrir rúmum þremur árum yfirtók bankinn hluta þeirra íbúðalána sem verið höfðu í eigu Kaupþings. Stærsti hluti íbúðalánasafnsins var hins vegar áfram í sjóði í eigu þrotabús Kaupþings. Arion banki hefur haft með höndum alla þjónustu gagnvart greiðendum lánanna og því fela kaupin nú ekki í sér neina breytingu fyrir lánþega og viðskiptavini bankans. Íbúðalánasafnið, sem Arion banki yfirtekur, er metið á um 120 milljarða króna. Með yfirtökunni eflir Arion banki stöðu sína á íbúðalánamarkaði með íbúðalánasafn sem nemur um 200 milljörðum króna. Heildareignir bankans eftir yfirtöku nema rúmlega 900 milljörðum króna. Samkomulagið felur í sér að Arion banki verður útgefandi sértryggðra skuldabréfa í stað Kaupþings. Sértryggðu skuldabréfin voru gefin út á árunum 2006-2008 til fjármögnunar á íbúðalánum. Arion banki mun þannig auka langtíma fjármögnun sína um rúma 120 milljarða króna. Sértryggðu skuldabréfin verða skráð í kauphöll síðar á þessu ári. Við yfirtöku Arion banka á íbúðalánum frá Kaupþingi í október 2008 og í janúar 2010 var veittur að meðaltali 21% afsláttur af verðtryggðum lánum sem endurspeglaði meðal annars stöðu lánasafnsins og væntingar um þær afskriftir sem framkvæma þyrfti. Hefur Arion banki þegar fullnýtt það svigrúm sem fyrir hendi var til afskrifta, og gott betur, eins og áður hefur komið fram. Enginn slíkur afsláttur er veittur við kaupin nú þar sem gæði lánasafnsins eru mjög mikil.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira