Viðskipti innlent

Eignir innlánsstofnanna hækka áfram

Heildareignir innlánsstofnana námu 2.858 milljörðum kr. í lok desember sl. og höfðu hækkað um 1 milljarð kr. frá nóvember.

Innlendar eignir námu 2.504 milljörðum kr. og höfðu lækkað um 8,9 milljarða kr. að því er segir í hagtölum Seðlabankans. Erlendar eignir námu 355 milljörðum kr. og höfðu hækkað um 9,9 milljarða kr. frá fyrri mánuði.

Í lok desember námu skuldir innlánsstofnana 2.371 milljörðum kr. og höfðu lækkað um 4,6 milljarða kr. frá nóvember. Eigið fé innlánsstofnana í lok desember sl. var 487 milljarða kr. eiginfjárhlutfall í heild er því rúmlega 17% eða yfir mörkum Fjármálaeftirlitsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×