Viðskipti innlent

Töluverð fjölgun eftirlitsmála hjá Kauphöllinni milli ára

Kauphöllin afgreiddi alls 78 eftirlitsmál á síðasta ári og af þeim var 20 málum vísað til Fjármálaeftirlitsins til nánari rannsóknar.

Þetta er mun meiri fljöldi mála en komu upp árið 2010 þegar þau voru 58 talsins. Hinsvegar dró aðeins úr fjölda mála sem vísað var til Fjármálaeftirlitsins en slík mál voru 22 talsins árið 2010.

Af málunum 78 í fyrra voru 60 vegna gruns um brot á reglum um upplýsingagjöf félaga á markaði og 18 mál sem lutu að viðskiptum með verðbréf að því er segir í tilkynningu frá Kauphöllinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×