Viðskipti innlent

Múrbúðin kærir Byko

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar, hefur kært Byko til Neytendastofu vegna auglýsinga- og kynningarherferðar sem Byko hóf eftir áramótin. Baldur segir að herferðin feli í sér rangar og villandi upplýsingar og vill að Neytendastofa rannsaki málið og grípi til viðeigandi aðgerða.

Baldur segir meðal annars í kærunni til Neytendastofu að Byko hafi ekki lækkað verð á vörum með þeim hætti sem auglýst hafi verið. Af sextíu vörum sem Byko segist hafa lækkað verðið á hafi verð staðið í stað eða hækkað í 16% tilfella. „Fullyrðingar forstjóra Byko um að allar vörur fyrirtækisins lækki „frá einu prósenti og upp í þrjátíu og fimm prósent" eru því með öllu ósannar," segir Baldur meðal annars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×