Glitnir átti fimmtung í sjálfum sér árið 2007 29. mars 2012 04:00 Slitastjórn Glitnis vill að skaðabótaskylda PWC vegna brota á lög- og samningsbundum skyldum fyrirtækisins við endurskoðun bankans á árunum 2007 og 2008 verði viðurkennd. Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson sitja í slitastjórninni. fréttablaðið/pjetur
Fjármálaeftirlitið (FME) gerði ítrekað athugasemdir við skýrslur Glitnis um tengda aðila síðasta árið fyrir bankahrun. Slitastjórn bankans telur að lán til Baugs, FL Group og tengdra aðila hafi numið um 85% af eiginfjárgrunni Glitnis sem er rúmlega þrisvar sinnum meira en lög heimiluðu. Hún telur einnig að Glitnir hafi átt 21,43% af hlutabréfum í sjálfum sér í árslok 2007. Þetta er meðal þess sem kemur fram í stefnu slitastjórnarinnar á hendur PricewaterhouseCoopers (PWC) á Íslandi og í Bretlandi sem þingfest verður 12. apríl næstkomandi. Samkvæmt henni kom það í ljós „eftir að skilanefnd og síðar slitastjórn stefnanda tóku til starfa og hófu að skoða stöðu bankans og rekstur hans árin fyrir fall hans […] að stjórnun hans og endurskoðun hafi í veigamiklum atriðum verið stórlega ábótavant“. Slitastjórn Glitnis vill að skaðabótaskylda PWC vegna þess tjóns sem bankinn hlaut af vanrækslu fyrirtækisins við endurskoðun hans á árunum 2007 til 2008 verði viðurkennd. Í stefnunni, sem er 34 blaðsíður að lengd, eru sérstaklega tilgreind fimm atriði þar sem PWC á að hafa brotið gegn lög- og samningsbundnum skyldum sínum. Í fyrsta lagi hafi PWC ekki upplýst um að stjórnendur Glitnis hefðu veitt útlán til innbyrðis tengdra aðila langt umfram leyfileg áhættuhámörk, í öðru lagi leynt útlánaáhættu bankans til aðila sem töldust tengdir, í þriðja lagi veitt stórfelld útlán til fjárvana eignarhaldsfélaga, í fjórða lagi vanrækt afskriftarskyldu sína og í fimmta lagi vanrækt að upplýsa um þá gríðarlega miklu fjárhagslegu hagsmuni sem bankinn var með í eigin bréfum með þeim afleiðingum að eigið fé hans var verulega of hátt skráð. Lögmaður Glitnis vitnar mikið til þess í stefnunni að FME hafi gert athugasemdir við PWC á árunum 2007 og 2008 vegna þess að ekki hafi verið gerð „fullnægjandi grein fyrir viðskiptum venslaðra aðila við bankann. Til þess flokks féllu félög sem Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnaði“. Er þar vísað til Baugs, FL Group og aðila þeim tengdum. Í stefnunni segir einnig að viðvarandi útlánaáhætta umfram lögbundin mörk og nýjar lánveitingar til stærstu eigenda sinna hafi aukið „fjártjónshættu bankans sem síðan varð raunveruleg. Við gjaldþrot Baugs Group í mars 2009 tapaði bankinn u.þ.b. 36 milljörðum króna […] FL Group gerði nauðasamninga við sína lánadrottna til að forða gjaldþroti félagsins og varð bankinn að gefa eftir kröfur sem námu ríflega 50 milljörðum króna […] Verður a.m.k. hluti þess fjártjóns m.a. rakið til bótaskyldrar háttsemi stjórnar bankans og stefnda PWC“. Þá segir að Glitnir hafi í raun átt 2,8 milljarða hluta í sjálfum sér í árslok 2007, eða 21,43% af öllu hlutafé hans, þrátt fyrir að reikningar bankans hafi sýnt að eigin hlutir bankans hafi einungis verið 151 milljón talsins. Láðst hafi að telja með hlutabréf sem voru seld í lok árs 2007 með annað hvort einvörðungu veði í bréfunum sjálfum eða í framvirkum samningum með eigin bréfum. Því hafi „vantalin eigin bréf og áhætta bundin við eigin bréf [numið] tugum milljarða króna í árslok 2007“. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Fleiri fréttir Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Sjá meira