ÍLS skilaði tæplega milljarðs hagnaði í fyrra 29. mars 2012 09:54
Íbúðalánasjóður (ÍLS) skilaði 986 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Þetta er verulegur viðsnúningur til hins betra því árið á undan varð 34,5 milljarða kr. tap á starfsemi sjóðsins. Þetta kemur fram í ársreikningi ÍLS sem staðfestur hefur verið af stjórn sjóðsins. Í reikningum kemur fram að eigið fé Íbúðalánasjóðs í árslok var 9,55 milljarðar kr. samanborið við rúma 8,56 milljarða í árslok 2010. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 2,3% en var 2,2% í upphafi ársins. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0% og viðræður við stjórnvöld miða að því að uppfylla það markmið. Í ársbyrjun 2011 var ákveðið með samkomulagi lánveitenda og stjórnvalda að ráðast í niðurfærslu lána umfram 110% af markaðsvirði fasteigna. Um 5.200 heimili sóttu um úrræðið til Íbúðalánasjóðs. Þegar tekið hafði verið tillit til markaðsverðs fasteigna og frádráttarbærra eigna varð niðurstaðan sú að um 2.800 heimili fengu niðurfærslu að fjárhæð 7,2 milljarða króna eða um 2,6 milljónir króna að meðaltali á heimili. Um 2.400 heimili fengu synjun en þar af voru 500 heimili þar sem húsnæði var ekki veðsett umfram 110%. Á árinu leysti sjóðurinn til sín 691 íbúð til fullnustu krafna og seldi 154 íbúðir. Í eigu sjóðsins voru 1.606 fullnustueignir í lok árs 2011 og hafði þeim fjölgað um 537 á árinu. Um 40% þessara eigna eru í útleigu. Íbúðalánasjóður leigir eignir á þeim svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og sjóðurinn er ekki með ráðandi markaðshlutdeild, en aðrar eignir fara í söluferli. Bókfært virði þessara eigna tekur mið af áætluðu markaðsvirði að teknu tilliti til ástandsmats, alls 22,5 milljarðar króna.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira