Viðskipti innlent

Skuldir Álftaness minnka

Álftanes
Álftanes Mynd/GVA
Skuldir og skuldbindingar Álftaness voru 7,2 milljarðar í árslok 2009 en verður komin í 3,2 milljarða í lok þessa árs verði af sameiningu sveitarfélagsins við Garðabæ.

Þetta fullyrðir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Segir hann að sameining sveitarfélaganna sé hagkvæmur og skynsamlegur kostur. Skuldastaða Álftnesinga muni engin áhrif hafa á núverandi álögur eða þjónustustig fyrir íbúa í Garðabæ verði af sameiningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×