Borin von að Ísland geti rekið sinn eigin gjaldmiðil 24. apríl 2012 08:47
Jón Steinsson hagfræðingur við Columbia háskólann í New York segir að ef Íslendingar ekki haldið aftur af verðbólgu þegar hagkerfið er verndað á bak við gjaldeyrishöft og atvinnuleysi er 6%, er borin von að þeir geti rekið sinn eigin gjaldmiðil með góðum árangri í opnu hagkerfi. Þetta kemur fram í grein sem Jón skrifar í Fréttablaðið í dag undir fyrirsögninni: Seðlabankinn þarf að hækka vexti. Jón telur að bankinn geti minnkað verðbólguna með vaxtahækkunum en vandinn sé sá að ef enginn hefur trú á því að Seðlabankinn muni gera neitt í því þótt verðbólga hækki getur verðbólga sprottið af sjálfu sér. „Seðlabankinn er reyndar blóraböggull í þessu öllu saman. Hinn raunverulegi vandi er að það er enginn stuðningur í samfélaginu fyrir því að Seðlabankinn haldi verðbólgu í skefjum. Alltaf þegar Seðlabankinn aðhefst eitthvað fær hann yfir sig holskeflu gagnrýni alls staðar að. Stjórnmálamenn í öllum flokkum skammast í honum. Og það gera líka forystumenn í verkalýðshreyfingunni og forystumenn atvinnurekenda," segir Jón í grein sinni. „Öll elítan í landinu er samstiga í því að skammast í Seðlabankanum ef hann vogar sér að reyna að halda aftur af verðbólgu. Það er því ekki nema von að verðbólga sé sjálfsprottin um þessar mundir á Íslandi. Talsmenn þess að við höldum í krónuna segja að það þurfi „bara" agaðri hagstjórn í framtíð en í fortíð. Sannleikurinn er sá að það er enginn stuðningur á Íslandi fyrir agaðri hagstjórn þegar kemur að peningamálum. Ef við getum ekki haldið aftur af verðbólgu þegar hagkerfið er verndað á bak við gjaldeyrishöft og atvinnuleysi er 6%, er borin von að við getum rekið okkar eigin gjaldmiðil með góðum árangri í opnu hagkerfi."
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Sjá meira