Viðskipti innlent

Snjallsímaörgjörvar seljast hratt

Snjallsímavæðingin hefur haft mikil margfeldisáhrif á hugbúnaðargeirann.
Snjallsímavæðingin hefur haft mikil margfeldisáhrif á hugbúnaðargeirann.
Arm Holdings, félag sem framleiðir örgjörva í snjallsíma, hagnaðist um 61 milljóna punda, jafnvirði um 11,8 milljarða króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Félagið hefur vaxið ógnarhratt með snjallasímavæðingunni, en örgjörvar frá félaginu eru notaðir bæði í I phone síma Apple og síma með Android stýrikerfinu.

Hagnaður jókst um 22 prósent miðað við sama tímabil í fyrra og samkvæmt afkomutilkynningu félagsins, sam fjallað er um á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC, er gert ráð fyrir að velta félagsins aukist hratt á næstu misserum, samhliða ört vaxandi eftirspurn eftir snjallsímum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×