Útlit fyrir tap Íslandspósts þrátt fyrir einkaleyfi 21. desember 2012 06:00 TAp þrátt fyrir einkarétt Útlit er fyrir að tap verði á alþjónustu Íslandspósts í ár, en innanríkisráðherra segir unnið að lækkun kostnaðar.
Taprekstur vegna minnkandi póstmagns kallar á að dregið verði úr kostnaði Íslandspósts vegna alþjónustu. Með alþjónustu er meðal annars átt við rekstur póstafgreiðslna um land allt og dreifingu pósts alla virka daga um land allt. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar þingmanns. Íslandspóstur hefur einkarétt á póstsendingum allt að 50 grömmum að þyngd. Einkarétturinn hefur til þessa staðið undir kostnaði Íslandspósts vegna alþjónustu, sem nemur nú um 400 til 600 milljónum króna á ári, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar. Í svari ráðherra kemur hins vegar fram að vegna minnkandi póstmagns sé útlit fyrir að í ár verði tap hjá fyrirtækinu vegna alþjónustunnar. Til að draga úr þörf Íslandspósts til að hækka gjaldskrár vinnur innanríkisráðuneytið nú að því að meta möguleikana í stöðunni. Spurning Einars varðaði áform stjórnvalda vegna tilskipunar ESB um opnun póstmarkaða og þar með afnám einkaréttarins. Ráðherra segir að ekki standi til að taka upp tilskipunina fyrr en ljóst sé að þessi mál heyri sannarlega undir EES-samninginn. Hvort sem einkarétturinn verður afnuminn eða ekki, getur engu að síður reynst nauðsynlegt að draga úr kostnaði vegna alþjónustunnar, segir ráðherra.- þj
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira