Vill bíða með nauðasamninga 21. desember 2012 06:00 Umsókn Fréttablaðið greindi frá því í vikunni að slitastjórn Glitnis hefði sótt um undanþágu frá gjaldeyrishöftum vegna nauðasamnings bankans. fréttablaðið/pjetur
Nefnd fulltrúa allra þingflokka um afnám gjaldeyrishafta hefur áhyggjur af fyrirhuguðum nauðasamningum Glitnis og Kaupþings og telur óráðlegt að samþykkja þá fyrr en heildræn stefna um afnám hafta og samningsafstaða liggur fyrir. Þetta kemur fram í bréfi sem nefndin sendi formönnum allra stjórnmálaflokka í gær. Fréttablaðið hefur bréfið undir höndum. Nefndin kemur einnig fram áhyggjum sínum af því að Glitnir og Kaupþing stefni að frágangi nauðasamninga og skipulegri útgreiðslu í kjölfar þeirra. Í bréfinu segir að það sé skoðun nefndarmanna „að við þessar aðstæður sé rétt að bíða átekta og meta stöðuna ítarlega áður en slíkum nauðasamningum er veitt brautargengi. Einnig er mikilvægt að mati nefndarmanna að ákvörðunarrammi stjórnvalda í tengslum við jafn mikilvægt mál og hér um ræðir sé styrktur frá því sem nú er og kæmi í því sambandi til álita að breyta núgildandi lagaákvæðum. Í því felst meðal annars að létta þrýstingi af Seðlabankanum um að setja reglur sem varða undanþágur gömlu bankanna til gjaldeyrisviðskipta“. Nefndin undirstrikar að lokum þörf fyrir heildstæða áætlun um losun hafta og telur óráðlegt að gera róttækar breytingar á núverandi starfsumhverfi gömlu bankanna fyrr en slík liggur fyrir. - þsj
Mest lesið Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sjá meira