Fjögur fordæmi fyrir leiðinni sem Nubo fer Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. maí 2012 22:23 Huang Nubo vill leigja Grímsstaði á Fjöllum og fjárfesta í ferðaþjónustu. .
Hvorki Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, né Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sögðust vita til þess að niðurstaða vegna kaupa Huangs Nubo lægi fyrir og að málið yrði kynnt í ríkisstjórn á föstudaginn. Vísir náði tali af þeim Ögmundi og Steingrími nú í kvöld. Unnið hefur verið að því að finna leið sem gerði Huang Nubo fært að fjárfesta á Grímsstöðum á Fjöllum frá því að Nubo var synjað um leyfi til þess að kaupa landið. Lausnin felur í sér að félag í eigu Nubos stofnar íslenskt félag sem verður leigutaki að jörðinni. Sveitarfélögin á Norðurlandi og Austurlandi stofna svo sameiginlega félag sem mun leigja landið út. Sú leið sem til stendur að fara til þess að kínverski fjárfestirinn Huang Nubo geti fjárfest í ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum byggir á lögum um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi. Lögin eru frá árinu 2010 og þeim var ætlað að stuðla að auknum fjárfestingum hérlendis eftir efnahagshrunið. Samkvæmt heimildum Vísis eru minnst fjögur dæmi um fjárfestingar sem ráðist hefur verið í á grundvelli þessara laga. Það eru Becromal á Akureyri, kísilmálmverksmiðja Thorsil, sem áformuð er á Húsavík með kanadískum fjárfestum, kísilverksmiðja í Helguvík, sem bandarískir fjárfestar standa á bak við, og gagnaver Verne Holding á Keflavíkurflugvelli. Fjárfestingasamningur vegna verkefnisins verður að öllum líkindum kynntur í ríkisstjórn á föstudaginn, en unnið hefur verið að samningnum að undanförnu. Slíkur samningur gefur opinberum aðilum færi á að veita Nubo frekari ívilnanir vegna fjárfestinga hans. Til dæmis með því að heimila honum að fresta greiðslu tekjuskatts og sveitarfélög fái heimild frá ríkissjóði til að lækka fasteignagjöld sem innheimt verða af Nubo.
Mest lesið Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Sjá meira