Viðskipti innlent

Leigusamningur Stórsveitarinnar er táknrænn gjörningur

BBI skrifar
Stórsveitin marseraði inn í Hörpuna í dag og tók lagið á ganginum á annarri hæð.
Stórsveitin marseraði inn í Hörpuna í dag og tók lagið á ganginum á annarri hæð. Mynd/Jóhanna
Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpunnar, segir að leigusamningurinn við Stórsveit Reykjavíkur sé fyrst og fremst táknrænn gjörningur þar sem þessi geiri tónlistar er boðinn velkominn í húsið. Þar á hann helst við tónlistarstefnuna jazz.

Stórsveit Reykjavíkur gerðist þriðji leigjandinn í Hörpu í dag og skrifaði undir leigusamning til eins árs. Halldór vill ekki ræða leigusamninginn í smáatriðum. Hann segir hins vegar að leigusamningurinn sé töluvert umfangsminni en t.d. samningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

„Við viljum auðvitað hafa þá hér sem lengst," segir Halldór þó að samningurinn sé aðeins til eins árs til að byrja með. „Við þurfum bara að sjá hvernig þeir kunna við sig."

Með samningnum mun Stórsveitin bæði fá aðstöðu til að æfa sig í húsinu sem og aðstöðu til tónleikahalds.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×