Fjárhagslegri endurskipulagningu lokið 27. desember 2012 17:41 Mynd frá athöfninni í dag.
Lokið er fjárhagslegri endurskipulagningu Sveitarfélagsins Álftaness og hefur innanríkisráðherra leyst frá störfum fjárhaldsstjórn sem skipuð var til að annast verkefnið í samráði við bæjarstjórnina og innanríkisráðuneytið. Fjárhaldsstjórnin annaðist meðal annars samninga við lánardrottna og jafnframt kom fram tillaga sveitarfélagsins um sameiningu sveitarfélagsins við annað sveitarfélag. Var sameining við Garðabæ samþykkt í báðum sveitarfélögunum í haust. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra afhenti fjárhaldsstjórninni bréf þessa efnis í dag. Jafnframt var því fagnað að um áramótin munu sveitarfélögin Álftanes og Garðabær sameinast og verður nafn hins sameinaða sveitarfélags Garðabær.Forsagan Forsaga málsins er sú að haustið 2009 vann Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) skýrslu um fjárhag sveitarfélagsins samkvæmt samkomulagi við bæjarstjórn í kjölfar þess að bæjarstjórnin tilkynnti EFS að sveitarfélagið væri komið í fjárþröng. Lagði nefndin til við ráðherra að sveitarfélaginu yrði skipuð fjárhaldsstjórn sem hefði forystu um endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins í samræmi við þágildandi sveitarstjórnarlög. Kristján L. Möller, þáverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skipaði í fjárhaldsstjórn í febrúar 2010 þau Andra Árnason, hrl. sem skipaður var formaður, Elínu Guðjónsdóttur viðskiptafræðing og Harald L. Haraldsson hagfræðing. Fjárhaldsstjórnin tók þá við stjórn fjármála sveitarfélagsins en að öðru leyti fór sveitarstjórn áfram með málefni sveitarfélagsins. Við skipunina lagði ráðherra áherslu á gott og náið samstarf allra sem málið varðar og að við fjárhagslega endurskipulagningu sveitarfélagsins skyldi horft til þess að verja eins og kostur er grunnþjónustu við íbúa sveitarfélagsins og félagslega velferð þeirra. Fjárhaldsstjórnin lagði fram um mitt árið 2010 tillögur um helstu þætti samkomulags við lánardrottna um lækkun skulda og ýmsa hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins. Náið samráð var haft við fulltrúa Sveitarfélagsins Álftaness og Sambands íslenskra sveitarfélaga um tillögurnar og lýstu þeir ánægju með samstarfið og að fullur trúnaður og traust hefði verið milli manna í þessari vinnu. Í samningi Sveitarfélagsins Álftaness og EFS undir árslok 2009 var ákvæði um að sveitarfélagið myndi leitast við að sameinast öðru sveitarfélagi. Hóf sveitarstjórn þegar undirbúning meðal annars með skoðanakönnun, viðræður hófust milli fulltrúa Álftaness og Garðabæjar og ákveðið var að kjósa um sameiningartillögu. Gert var ráð fyrir að fjárhaldsstjórnin starfaði þar til niðurstaða væri fengin um sameiningu sveitarfélaganna. Kosið var um sameininguna 20. október og var hún samþykkt í báðum sveitarfélögunum. Í Garðabæ voru 53,11% þeirra sem tóku afstöðu samþykk sameiningunni en 46,89% voru henni andvíg. Í Sveitarfélaginu Álftanesi sögðu 87,6% já við sameiningu en 11,5% sögðu nei. Alls verða íbúar hins sameinaða sveitarfélags um 14 þúsund. Bæjarstjórn Garðabæjar mun um áramótin taka við stjórn nýja sveitarfélagsins og stýra því fram að sveitarstjórnarkosningum 2014. Bæjarstjórn Álftaness mun á þeim tíma gegna hlutverki ráðgefandi hverfisstjórnar. Skuldir og skuldbindingar Sveitarfélagsins Álftaness voru í árslok 2009 7.256 milljónir króna en eru nú áætlaðar í árslok 2012 eftir fjárhagslega endurskipulagningu sveitarfélagsins 3.263 milljónir. Auk þessa hefur neikvæðri rekstrarafkomu sveitarfélagsins verið snúið í jákvæða og fellur sá rekstur vel að rekstri Garðabæjar.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira