Thor Data Center tapaði 180 milljónum 4. júlí 2012 15:00 Thor Data Center Gagnaver fyrirtækisins er í Hafnarfirði.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Thor Data Center, sem á og rekur gagnaver í Hafnarfirði, tapaði 180,2 milljónum króna í fyrra. Það er heldur meira en fyrirtækið tapaði á árinu 2010 þegar tapið nam 145,9 milljónum. Þetta kemur fram í ársreikningi Thor Data Center sem skilað var inn til ársreikningaskráar í lok maí síðastliðins. Thor Data Center var stofnað árið 2009 með það fyrir augum að koma á fót gagnaveri sem nýtir ódýra græna orku sem er í senn hagkvæm og mengar ekki. Sumarið 2010 voru fyrirtækinu lagðar til 400 milljónir króna í nýtt hlutafé. Á meðal þeirra sem tóku þátt í aukningunni var Fjárfestingafélagið Títan, í eigu Skúla Mogensen, sem eignaðist 33 prósenta hlut. Í nóvember 2011 var allt hlutafé í Thor Data Center selt til Advania. Kaupverðið fékkst ekki uppgefið. Í janúar 2012 keypti Títan síðan 5,17 prósenta hlut í Advania á um 140 milljónir króna og var þar með orðið óbeinn eigandi að Thor Data Center á ný. Í byrjun júní var tilkynnt að Thor Data Center hefði fengið vilyrði fyrir tvöföldun á núverandi lóð fyrirtækisins og að eftir tvöföldunina verði gagnaverið tæplega sex þúsund fermetrar að stærð. Jafnframt hefur Advania fengið vilyrði fyrir 30 þúsund fermetra lóð skammt frá þar sem framtíðaráform eru um að reisa annað gagnaver, allt að 20 þúsund fermetra að stærð með 10 metra lofthæð. - þsj
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Sjá meira