Lífeyrissjóðir í opinberri ábyrgð tifandi tímasprengja Magnús Halldórsson skrifar 4. júlí 2012 18:30
Neikvæð staða lífeyrissjóðanna, sem eru með opinberri ábyrgð, er eins og tifandi tímasprengja fyrir ríkissjóð. Lífeyrisgreiðslur til þeirra sem eiga rétt í lífeyrissjóðum, þar sem engin opinber ábyrgð er, hafa verið skertar um 130 milljarða króna frá hruni, á meðan lífeyrir flestra opinberra starfsmanna hefur ekkert skerst. Samkvæmt mati Fjármálaeftirlitsins á stöðu lífeyrissjóðakerfisins, sem kynnt var í gær, er neikvæð tryggingarfræðileg staða, það er eignastaða miðað við skuldbindingar við sjóðsfélaga í framtíðinni, sláandi. Skerðing á lífeyrisréttindum sjóðsfélaga í þessum sjóðum hefur numið um 130 milljörðum frá hruni samkvæmt mati FME. Staðan hjá hinum opinberu sjóðum er hins vegar mun alvarlegri, eins og hér sést, en hjá þeim búa opinberir starfsmenn við opinbera ábyrgð á lífeyrisréttindum. Samtals er neikvæða staðan upp á tæplega 700 milljarða, og eru sjóðir með opinbera ábyrgð með um 434 milljarða af því. Þetta þýðir að ef fram heldur sem horfir þá munu ríki og sveitarfélög þurfa að leggja sjóðunum til fé í framtíðinni til þess að geta staðið við skuldbindingar við sjóðfélaga, sem munu hlaupa á tugum milljarða árlega. Helsta áhyggjuefnið er staða B-deildar LSR, en hún er neikvæð um 344 milljarða króna. Fjármálaeftirlitið segir í mati sínu að lausnir á þessum vandamálum séu á borði stjórnmálamanna, en þar kemur helst til greina að afnema með öllu opinbera ábyrgð á sjóðunum, þannig að til skerðinga geti komið hjá þeim eins og öðrum sjóðum, hækka iðgjaldagreiðslur eða að hækka lífeyrisaldurinn sem í dag er 67 ár.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Sjá meira