Hlutur Landsbankastarfsmanna orðinn 1,5 prósent 5. september 2012 05:30 Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, sést hér með Steingrími J. Sigfússyni, sem var fjármálaráðherra þegar gengið var frá viðskilnaði gamla og nýja bankans. Hugmyndin um kaupaukakerfið er sögð hafa komið frá kröfuhöfum gamla bankans. fréttablaðið/valli
Sá hlutur í Landsbankanum sem mun fara í að mynda stofn að nýju kaupaukakerfi bankans var 1,5 prósent af öllu hlutafé hans um mitt þetta ár. Miðað við innra virði bankans er virði hlutarins um 3,2 milljarðar króna. Virði skilyrts skuldabréfs, sem ákvarðar hversu stóran hlut starfsmennirnir munu eignast í bankanum, jókst um níu milljarða króna á fyrri hluta þessa árs. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri Landsbankans sem birt var á fimmtudag. Í lok árs 2009 var greint frá með hvaða hætti uppgjör nýja Landsbankans og þrotabús forvera hans vegna eigna sem færðar voru yfir til þess nýja myndi verða. Í því fólst að íslenska ríkið eignaðist 81,33 prósenta hlut í nýja bankanum gegn 122 milljarða króna eiginfjárframlagi. Það sem eftir stóð, 18,67 prósenta hlutur, var í eigu þrotabús gamla bankans. Samhliða var gefið út skilyrt skuldabréf sem gera á upp í árslok 2012. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum mun virði þess, sem getur mest verið 92 milljarðar króna, ákvarðast af frammistöðu ákveðinna eigna sem færðar voru inn í nýja bankann. Um er að ræða tvö söfn, annars vegar lán til stærri fyrirtækja og hins vegar lán til smærri fyrirtækja. Í þessum lánasöfnum eru að mestu lán sem keypt voru á lágu verði úr þrotabúinu og voru því talin léleg. Ef virðisaukning á sér stað á lánasöfnunum renna 85 prósent hennar til þrotabús gamla bankans en fimmtán prósent til nýja bankans. Ef virði skuldabréfsins verður 92 milljarðar króna í lok þessa árs mun þrotabú gamla bankans afsala sér 18,67 prósenta eignarhlut sínum. Þar af mun 16,67 prósenta hlutur renna til Bankasýslu ríkisins, sem mun þá halda á 98 prósenta eignarhlut, en tvö prósent munu fara í að mynda stofn fyrir kaupaukakerfi starfsmanna nýja Landsbankans. Ef sá árangur næðist ekki þá myndi hluturinn sem Bankasýslan og starfsmenn Landsbankans eiga að fá rýrna í beinu hlutfalli við lokavirði skuldabréfsins. Virði skuldabréfsins um mitt þetta ár var 69 milljarðar króna. Það hefur aukist um níu milljarða á þessu ári og um 42,5 milljarða króna frá því í árslok 2010. Miðað við stöðu þess í dag myndu starfsmenn Landsbankans fá 1,5 prósenta hlut í bankanum. Miðað við eigið fé Landsbankans, sem er 212 milljarðar króna og jókst um milljarða króna á fyrri hluta ársins, er innra virði þess hlutar 3,2 milljarðar króna. Ef virði skuldabréfsins nær 92 milljörðum króna myndi tveggja prósenta hlutur starfsmanna verða rúmlega 4,2 milljarða króna virði. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira