Viðskipti innlent

Reginn kaupir fasteignir KEA hótelsins á Akureyri

Fasteignafélagið Reginn hefur fest kaup á fasteignum KEA hótelsins við Hafnarstræti á Akureyri af eignarhaldsfélaginu Krypton.

Í samkomulaginu um kaupin felst að þeir sem reka hótelið muni halda leigusamningi sínum áfram.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að kaupin séu gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun en að undirritun samningsins eigi að liggja fyrir í byrjun október.

Kaupverðið er trúnaðarmál. Hinsvegar er reiknað meða að kaupin muni auka brúttóhagnað Regins um 5%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×