Viðskipti innlent

Vöruskiptin hagstæð um um 12,6 milljarða í ágúst

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir ágúst s.l. var útflutningur 51,6 milljarðar króna og innflutningur 39 milljarðar króna. Vöruskiptin í ágúst voru því hagstæð um 12,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Um er að ræða mun hagstæðari niðurstöðu en í sama mánuði í fyrra þegar vöruskiptin voru hagstæð um 8,2 milljarða kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×