Ólafur Þór: Mörg mál á lokastigum - skattamálum fjölgað mikið Magnús Halldórsson skrifar 5. september 2012 10:59 Ólafur Þór Hauksson. „
Það er nokkur fjöldi mála sem er á lokastigi meðferðar hjá okkur, og saksóknarar eru komnir með inn á sitt borð. Við höfum ekki gefið upp nákvæmlega hvað þetta eru mörg mál eða um hvað mál er að ræða, þar sem þau eru enn til meðferðar," segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Nú tæpum fjórum árum eftir hrun fjármálakerfisins sér fyrir endann á rannsókn fjölda mála sem hafa verið til rannsóknar hjá embættinu. „Það hefur verið töluvert annríki hjá okkur við yfirheyrslur að undanförnu, þar sem mál hafa verið í lokarennsli, eins og við köllum það, áður en endanlegar ákvarðanir um hvort gefnar séu út ákærur eru teknar," segir Ólafur Þór. Málum er varða meint brot gegn skattalöggjöf hefur fjölgað mikið upp á síðkastið en um 30 mál komu inn á borð embættis sérstaks saksóknara við sameiningu efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra við embættið. Síðan hefur málum fjölgað um meira en helmning. „Á innan við ári hefur málum fjölgað upp í ríflega 80, og þar af eru tæplega 40 mál sem eru fullrannsökuð og annað hvort komin inn á borð dómstóla eða á leið þangað," segir Ólafur Þór. Einungis tvö mál, sem rekja má til hruns fjármálakerfisins og embætti sérstaks saksóknara hefur ákært vegna, hafa verið til lykta leidd fyrir dómstólum. Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, var hinn 17. febrúar á þessu ári dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi, en brot hans snéri að því er hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum að verðmæti um 192 milljóna króna á sama tíma og hann bjó yfir innherjaupplýsingum um stöðu bankans. Þá voru Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Byrs sparisjóðs, og Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður sjóðsins, dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi 7. júní sl. fyrir umboðssvik í hinu svokallaða Exeter-máli, þegar ríflega eins milljarðs króna lán var notað til þess að kaupa stofnfjárbréf Byrs af Jóni Þorsteini, félagi í eigu Ragnars og síðan MP banka. Ákæran beindist einnig að Styrmi Þór Bragasyni, fyrrverandi forstjóra MP banka, en málatilbúnaði er snéri að honum var vísað aftur til meðferðar í héraði. Allir ákærðu voru áður sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur, en Hæstiréttur snéri dómnum og vísaði meðal annars til þess í dómsorði að sýknudómar í héraði hefðu byggst á rangri túlkun dómara á lögum um umboðssvik.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira