Kæra á hendur framkvæmdastjóra Thule enn til meðferðar 5. september 2012 17:00 Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Embætti sérstaks saksóknara hefur enn til meðferðar kæru á hendur framkvæmdastjóra Thule Investments, Gísla Hjálmtýssyni, vegna meintra umboðssvika hans. Embættinu barst kæra í byrjun febrúar á þessu ári en henni var vísað frá 8. maí, þar sem ekki var talið vera tilefni til sakamálarannsóknar. Ríkissaksóknari fól síðan sérstökum saksóknara að taka málið til rannsóknar á nýjan leik. „Málið er enn til meðferðar hér innanhúss, en meira er ekki hægt að segja um það að svo stöddu. Það er í eðlilegum farvegi,“ sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Í kærunni er Gísla gefið að sök að hafa leynt umbjóðendur sína upplýsingum, veitt þeim rangar upplýsingar og síðan „blekkt þá til að selja sér verðmæta hluti í félögum sem hann hafi síðan persónulega hagnast á um hundruð milljónir króna“, að því er fram kom í fréttum RÚV af málinu 28. júní sl. Gísli Hjálmtýsson sagði í samtali við fréttastofu í dag að kæran væri ekki í samræmi við veruleikann. „Málið á sér enga stoð, og ég á ekki von á öðru en að sérstakur saksóknari komist að sömu niðurstöðu og hann hefur komist að á fyrri stigum málsins,“ sagði Gísli. Hann vildi ekki tjá sig um málið frekar. Thule Investments annast rekstur og umsýslu fagfjárfestasjóðanna Brú Venture Capital og Brú II Venture Capital Fund. Eignasöfn sjóðanna telja félög á Íslandi, USA, og í löndum Evrópusambandsins, að því er segir á vefsíðu Thule. Að mestu er Thule nú að annast eignir sem eru í inn í sjóðnum Brú II, að sögn Gísla. Þær eru metnar á um sex milljarða króna. Á meðal þeirra sem eiga hlut í Brú II eru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, ásamt lífeyrissjóðum, þar á meðal Stapa lífeyrissjóði, Gildi lífeyrissjóði, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Meðal eignarhluta eru hlutir ýmsum nýsköpunarfyrirtækjum, eins í Leikhúsmógulnum, sem m.a. hefur haft tekjur af sýningum á Hellisbúanum víða um heim, félaginu Blue Wave, sem gerir út úthafsveiðiskip sem stundar veiðar við Afríkustrendur, Caoz, sem framleiðir teiknimyndir, og Ensímtækni, sem vinnur m.a. snyrtivörur úr þorskensímum.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira