Arctic Investment eignast meirihluta í Andersen & Lauth 5. september 2012 15:26 Félagið hefur ráðið Sigrúnu Andersen sem framkvæmdastjóra.
Gengið hefur verið frá samningi um kaup Arctic Investment á meirihluta í Andersen & Lauth. Andersen & Lauth er íslenskt fyrirtæki sem hannar, framleiðir og selur hátískufatnað á alþjóðamarkaði. Það byggir á gömlu vörumerki sem á sérstakan stað í hugum margra Íslendinga og leggur stolt í að halda tengslum við uppruna merkisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Félagið vinnur með íslenskum hönnuðum og hefur náð að byggja upp traust viðskiptasambönd á erlendum mörkuðum, hvorutveggja í sölu sem og í framleiðslu. Eigandi Arctic Investment er Kristinn Már Gunnarssonar sem er m.a. meirihlutaeigandi í Cintamani á Íslandi. Verslanir Andersen & Lauth á Íslandi verða áfram í eigu Helgu Gísladóttur, Eiríks Sigurðssonar og fjölskyldu sem hafa verið með félaginu frá upphafi. Með aðkomu Arctic Investment skapast miklir möguleikar á sölu og dreifingu á vörum félagsins í Þýskalandi, en móðurfélag þess, Arctic Group hefur um árabil markaðssett fatnað frá fyrirtækjum eins og Vera Moda, Karen Millen, Day, New Look og Oasis og nú síðast Cintamani. Kristinn Már Gunnarsson, stjórnarformaður Arctic Investment, mun taka við stjórnarformennsku Andersen og Lauth. Félagið hefur ráðið Sigrúnu Andersen sem framkvæmdastjóra. Hún hefur mikla reynslu í rekstrarstjórnun félaga, var m.a. framkvæmdastjóri Topshop ehf. og sá um viðskiptaþróun og rekstur allra sérleyfisverslana Arcadia á Íslandi. „Andersen & Lauth fatnaðurinn hefur náð að skapa sér stað á markaðnum á skömmum tíma með sínum sérstaka stíl og sögu. Með nýjum eigendum mun félagið fá gott aðgengi að nýjum mörkuðum sem tryggir enn frekar framtíðaruppbyggingu félagsins. Ég hlakka til að takast á við þetta nýja verkefni og mun leggja mitt af mörkum við að auka orðstýr íslenskrar hönnunar í samvinnu við okkar frábæru hönnuði" segir Sigrún Andersen í tilkynningu fyrirtækisins. Helga Ólafsdóttir hönnuður hefur tekið að sér að leiða hönnunarteymi félagsins hér á landi. Hún er menntuð frá Hellerup Textil Academi í Danmörku og Kent Institute of Art and Design í Bretlandi. Helga hefur starfað sem hönnuður hjá Ilse Jacobsen og I SAY í Danmörku, All Saints í Bretlandi, Nikita og Ígló á Íslandi. Lögð verður áhersla á að hönnun félagsins verði áfram á Íslandi, en þannig getur félagið stutt við þróun íslenskrar hönnunar og opnað leiðir til bættra tengsla við framleiðslu og dreifingu á erlendum mörkuðum fyrir íslenska hönnun.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira