Seðlabanki Íslands heldur gjaldeyrisútboð 5. september 2012 16:44
Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Jafnframt kallar Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin þrjú sem haldin verða 3. október n.k. eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 og skilmála Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011 með síðari breytingum. Eins og kom fram í áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta þá verður gætt að fjármálastöðugleika í hverju skrefi. Í því ljósi áskilur Seðlabankinn sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í öllum útboðunum þremur verður tveim dögum eftir að útboði lýkur. Viðskiptavökum á millibankamarkaði með gjaldeyri er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri. Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn greiðslu í ríkisverðbréfum. Yfirlit um alla þessa aðila má finna á heimasíðu Seðlabankans. Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning við Seðlabanka Íslands um milligöngu (upplýsingar hér að neðan) munu annast framlagningu umsókna um fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Tilboðum skal skilað eigi síðar en 3. október 2012. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðanna þriggja er að finna í útboðsskilmálum. Markmið þessara aðgerða er að selja krónur fyrir gjaldeyri til aðila sem ákveðið hafa að fjárfesta í íslensku atvinnulífi eða í skuldabréfum ríkissjóðs sem verða í vörslu í 5 ár. Aðgerðin stuðlar þannig að því að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga með þeim hætti úr endurfjármögnunarþörf auk þess að laða til landsins erlendan gjaldeyri í langtímafjárfestingar og auðvelda þannig losun gjaldeyrishafta. Útboðinu um kaup á krónum er ætlað að stuðla að því að fjárfestar geti selt krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Lausafjárstaða bankanna er nægilega sterk til þess að standast tilfærslur á þeirri krónufjárhæð sem Seðlabankinn mun bjóðast til að kaupa og með ofangreindum endurkaupum á ríkisbréfum er dregið úr mögulegum hliðaráhrifum viðskiptanna á skuldabréfamarkað. Samkvæmt útboðsáætlun Seðlabankans er stefnt að næstu útboðum 7. nóvember og 19. desember næstkomandi. Seðlabankinn áskilur sér rétt til að eiga viðskipti á milli útboða þar sem verð hverju sinni tekur mið af útboðsverði síðasta útboðs á undan.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira