Viðskipti innlent

Jón Helgi selur Húsgagnahöllina

BBI skrifar
Húsnæði Húsgagnahallarinnar verður áfram í eigu Norvik.
Húsnæði Húsgagnahallarinnar verður áfram í eigu Norvik. Mynd/Vilhelm
Jón Helgi Guðmundsson, helsti eigandi Norvik, hefur ákveðið að selja Húsgagnahöllina. Kaupendurnir eru bræðurnir Guðmundur Gauti og Egill Reynissynir, sem eiga verslanirnar Betra bak og Dorma. Frá þessu var greint á vef Viðskiptablaðsins í kvöld.

Norvik á fjölda smávöruverslana, svo sem Byko, Elko, Intersport og Kaupás, sem rekur Nóatún og Krónuna. Jón Helgi og fjölskylda hans eru helstu eigendur Norvik.

Framkvæmdastjóri Norvikur gefur þær skýringar á sölunni að það hafi aldrei verið tilgangur Norvik að vera mikið í húsgagnabransanum. Ekki kemur fram hvert kaupverðið er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×