Tollar og vörugjöld fela í sér mismunun BBI skrifar 5. september 2012 21:18 Guðlaugur Þór Þórðarson. Mynd/Valli
Innflutningstollar á vörur fela í sér hrópandi mismunun milli þeirra sem eru efnaðir og þeirra sem hafa lítið milli handanna. Þetta fullyrti Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. Flugfarþegar sem ferðast til annarra landa geta verslað ódýran varning þar og flutt hann til landsins án þess að borga af honum tolla upp að ákveðnu marki. Þeir sem heima sitja þurfa hins vegar að greiða tolla og vörugjöld af öllu sem þeir flytja til landsins. „Þetta er náttúrlega ótrúlega mikil mismunun og skrítið hvað þetta er lítið í umræðunni," sagði Guðlaugur, enda telur hann blasa við að það sé aðeins efnameira fólk sem hefur tök á því að ferðast til annarra landa og fær þannig möguleika á að versla ódýrari varning. „Sérstaklega er þetta óréttlátt gagnvart þeim sem eru efnaminnstir á landinu," segir hann. „ En þetta er ekki bara óréttlátt, þetta er líka óskynsamlegt," enda telur hann að með háum tollum sé verið að hrekja alla verslun úr landinu enda sæki landsmenn frekar til annarra landa til að versla. „Það er löngu kominn tími til að við endurskoðum alla viðskiptastefnu okkar með það að markmiði að lækka gjöld og bæta lífskjör fólks, sérstaklega þeirra sem minnst mega sín," segir hann og telur einstakt tækifæri til þess nú þegar Ísland er ekki hluti af Evrópusambandinu. Aðspurður telur hann ekki rétt að ríkið missi af tekjum ef það lækki tolla. Það eina sem tollarnir geri sé að fæla verslun burt úr landinu. Viðtalið við Guðlaug í heild sinni má nálgast á hlekknum hér að ofan.
Mest lesið Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent