Þjóðin virðist klofin í afstöðu sinni til þess hvort draga eigi til baka ákæru á hendur Geir H Haarde fyrir Landsdómi, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn eru einu sem vilja afgerandi falla frá ákærunni.
Alþingi vísaði þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í janúar og mun nefndin funda næst um málið fjórtánda febrúar næstkomandi. Fari svo að tillagan verði felld við atkvæðagreiðslu í þinginu mun aðalmeðferð í málinu hefjast í Þjóðmenningarhúsinu þann fimmta mars.
Alþingi hefur verið klofið í afstöðu til ákærunnar og svo virðist sem þjóðin sé það líka. Þannig voru jafnmargir í könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem voru mjög eða frekar fylgjandi því að ákæran yrði dregin til baka og að þeir væru mjög eða frekar andvígir því. Tólf prósent svarenda voru hlutlausir. Aðeins fleiri karlar en konur vilja fella málið niður.
Þegar skoðað er hvernig svarendur skiptast eftir stjórnmálaflokkum vilja sextíu prósent framsóknarmanna að tillagan verði dregin til baka, einungis tuttugu og fjögur prósent stuðningsmanna Bjartrar Framtíðar, flokks Guðmundar Steingrímssonar og þriðjungur Samstöðu, flokks Lilju Mósesdóttur. Hátt í áttatíu prósent Sjálfstæðismanna vilja falla frá ákærunni en undir tuttugu prósent stuðningsmanna Hreyfingarinnar. Þá eru kjósendur stjórnarflokkanna Samfylkingar og Vinstri Grænna flestir andvígir afturköllun.
Hringt var í átta hundruð manns áttunda og níunda febrúar síðastliðinn sem valdir voru með slembivali úr þjóðskrá. Níutíu og fjögur prósent tóku afstöðu til spurningarinnar.
Þjóðin klofin í afstöðu sinni til Landsdómsmálsins
Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Mest lesið

„Ég held að þú þurfir ný gleraugu“
Viðskipti innlent

Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða
Viðskipti innlent

Vaxtalækkunarferlið heldur áfram
Viðskipti innlent

„Sporttöppum“ aftur komið fyrir
Neytendur

Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara
Viðskipti innlent

Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd
Viðskipti innlent

Ráðinn markaðsstjóri Bónuss
Viðskipti innlent

Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta
Viðskipti innlent

Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila
Viðskipti innlent

Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka
Viðskipti innlent