Kostaði 19 milljarða að rikistryggja innistæður í SpKef Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. júní 2012 11:37
Það kostaði íslenska ríkið rúma 19 milljarða að ríkistryggja innistæður í SpKef, samkvæmt niðurstöðum úrskurðarnefndar sem sett var á laggirnar að skera úr um endurgjald ríkisins til Landsbankans vegna yfirtöku á sparisjóðnum. Úrskurðurinn var kveðinn upp í gær. Þar segir að með úrskurðinum sé endanlega leyst úr ágreiningi milli aðila um greiðslu til Landsbankans hf. vegna yfirtöku á SpKef sparisjóði. Uppgjör til Landsbankans verður samkvæmt samningi aðila í formi ríkisskuldabréfs (RIKH 18), sem er á gjalddaga þann 9. október 2018. SpKef sparisjóður var stofnaður af fjármálaráðuneytinu í apríl 2010 í því skyni að taka við eignum og innstæðuskuldbindingum Sparisjóðsins í Keflavík samkvæmt ákvörðun FME með vísan til heimildar í 1. gr. laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl. Með þessari greiðslu til Landsbankans hf. fyrir yfirtöku á eignum og skuldum í SpKef sparisjóði, er íslenska ríkið að efna þau fyrirheit að tryggja allar innstæður hér á landi og óskert aðgengi innstæðueigenda að fjármunum sínum á hverjum tíma.
Mest lesið Að sleikja narsisstann upp í vinnunni Atvinnulíf Alltof margir sem sitja eftir með sárt ennið Viðskipti innlent Íslendingur missir leyfið fyrir KFC í Danmörku eftir meiriháttar hneyksli Viðskipti erlent Verðbólgan úr 3,8 prósentum í 4,2 prósent Viðskipti innlent Flügger rannsakað fyrir brot á viðskiptaþvingunum Viðskipti erlent „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Viðskipti erlent Siðblindir: Þrisvar sinnum meiri líkur á að þeir séu í stjórnendastörfum Atvinnulíf Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Viðskipti innlent Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Viðskipti innlent Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Viðskipti innlent Fleiri fréttir Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Sjá meira