Enginn kaupréttur fyrir lykilstjórnendur Haga 8. júní 2012 15:34 Árni Hauksson fyrir miðju, Sigþór Jónsson er til hægri og Hallbjörn Karlsson til vinstri. mynd/ stefán.
Stjórnarformaður Haga, Árni Hauksson, segir lykilstjórnendur Haga ekki fá kauprétt í hlutabréfum félagsins svo lengi sem hann er í stjórn. Þetta var ákveðið á ársfundi Haga í dag sem Viðskiptablaðið segir frá. „Það var samþykkt starfskjarastefna af hluthöfunum og hluthafarnir samþykktu okkar tillögu um að samkvæmt starfskjarastefnunni er ekki heimilt að gera kaupréttarsamninga við starfsmenn. Þeir voru ekki með slíka samninga en í gömlu stefnunni, frá fyrri tíð, var ákvæði um að það væri heimilt að gera slíka samninga við þá," sagði Árni Hauksson þegar Vísir náði tali af honum fyrir stundu. Árni segir að aðalfjárfestar í Högum séu ekki hrifnir af kaupréttarsamningum, en þeir vilji hins vegar greiða góðum starfsmönnum góð laun. „Við greiðum góð laun fyrir gott fólk en við munum ekki afhenda fólki hlutabréf í félaginu á einhverju afsláttarverði eða hlutabréf yfir höfuð," segir Árni. Árni segir að fréttir Stöðvar 2 af kaupréttarsamningum stjórnenda Eimskips hafi ekki haft nein áhrif á þessa ákvörðun. „Við lýstum þessu yfir við okkar meðfjárfesta, sem eru til dæmis lífeyrissjóðirnir, strax í upphafi fyrir ári síðan þannig að það hefur alltaf komið fram hjá okkur að við vildum ekki gera slíka samninga," segir Árni við Vísi. Fimm stjórnendur Haga fengu gefins 1,4% eignarhlut í Högum frá Eignarbjargi, dótturfélagi Arion banka, áður en fyrirtækið var skráð á markað. Þar á meðal voru Finnur Árnason, forstjóri Haga, og Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira