Yfirdráttur landans hærri en fyrir hrun 11. september 2012 00:01
efnahagsmálYfirdráttarlán heimilanna í landinu hafa ekki verið hærri í krónum talið frá hruni og stóðu í tæpum 87 milljörðum í lok júlí síðastliðins. Yfirdráttarlánin stóðu í 78 milljörðum í september 2008. Þetta kemur fram í tölum Seðlabanka Íslands um útlán innlánsstofnana, en yfirdráttarlán heimilanna eru þar sérstakur liður til sundurgreiningar frá öðrum yfirdráttarlánum opinberra aðila og fyrirtækja. Yfirdráttarlán í heild standa í 161 milljarði króna en hækkunin er 24 milljarðar á milli 31. júlí 2011 og sama dags 2012. Sú hækkun skrifast öll á heimilin í landinu. Tölfræðin sýnir að yfirdráttarlán hér á landi lækkuðu hratt fyrst eftir hrun og námu 43 milljörðum í júlí 2009 og höfðu þá lækkað um rúmlega 30 milljarða króna á nokkrum mánuðum. Lánin hafa síðan tvöfaldast aftur. Þeir sérfræðingar sem Fréttablaðið ræddi við telja ekki um einhlíta skýringu að ræða á hækkun lánanna; hvort um fjárfestingu sé að ræða eða einkaneyslu. Hallast menn almennt að síðari skýringunni og að neyðin reki marga til að taka þau lán sem yfirleitt eru þau dýrustu sem bjóðast. Nefnd var sú skýring að lánin hefðu hækkað mikið eftir að flestir hefðu nýtt sér sérstaka heimild til úttektar séreignarsparnaðar. Er nefnt að umframeyðsla heimilanna hafi verið fjármögnuð með þeim sparnaði en yfirdráttarlánin hafi svo tekið við. Algengir vextir yfirdráttarlána eru í dag tólf til þrettán prósent [voru hæstir 23,95% í janúar 2007] og því eru ársvextir algengs láns, sem er 400 þúsund krónur að meðaltali yfir árið, um 50 þúsund krónur á ári, svo dæmi sé tekið. Slá þarf þann varnagla við tölfræði SÍ um yfirdráttarlánin eftir hrun að upphæðirnar eru birtar eins og þær koma fyrir í efnahagsreikningum bankanna. Breytingar á milli mánaða og ára getur verið virðismat bankanna á lánasöfnum sínum og því ekki aðeins um hreina aukningu á útlánum að ræða. - shá
Mest lesið Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent