Búið að skattleggja fataverslun úr landi BBI skrifar 18. júní 2012 16:26 Finnur Árnason, forstjóri Haga.
Íslensk fataverslun er illa samkeppnishæf við nágrannalöndin vegna skattlagningar segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. Hér á landi eru tollar lagðir á vörur auk þess sem virðisaukaskattsstigið er 25,5%. „Við erum að keppa við Bretland, þar er enginn virðisaukaskattur á barnafatnað. Á Norðurlöndum fær fólk virðisaukaskattinn endurgreiddan (tax free). Í Bandaríkjunum er 6-8% söluskattur," segir Finnur. Þetta telur Finnur helstu ástæðuna fyrir því að fatasala hefur stöðugt dregist saman frá hruni. Nú síðast kom fram í Morgunkorni Íslandsbanka að fatasala dróst saman um 5% í maí miðað við sama tíma í fyrra og um 13% í apríl.Capacent gerði könnun árið 2011. Um 35% höfðu keypt sér föt síðast erlendis.Mynd/hagar.is„Það er tvennt í þessu. Annars vegar skattlagningin og hins vegar hafa ráðstöfunartekjur heimilanna dregist saman," segir Finnur. „Þess vegna leyfir fólk sér minna."Tvöfaldur tollur Finnur bendir auk þess á að Íslendingar greiði tvöfaldan toll af vörum sem framleiddar eru utan Evrópusambandsins. Íslenskir söluaðilar kaupa mikinn varning frá Danmörku, Bretlandi eða Hollandi eða Evrópusambandslöndum. Almennur tollur inn í Evrópusambandið er 15% og því er þegar búið að leggja á vöruna þegar Íslendingar kaupa hana. Hún er svo flutt til landsins og aftur greiddur tollur af henni. Ofan á það er að lokum lagður 25,5% virðisaukaskattur. Hagar reka meðal annars Hagkaup, Zara, Karen Millen, Topshop, Útilíf og Debenhams.
Tengdar fréttir Íslendingar kaupa sífellt minna af fötum Verslun með föt hefur dregist mikið saman frá árinu 2008 og ekkert lát er á samdrættinum. Í maí dróst verslunin saman um 5% miðað við sama mánuð síðasta árs. Í apríl var samdrátturinn 13%. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka. 18. júní 2012 12:54 Mest lesið „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Neytendur Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Viðskipti innlent SVÓT viðtöl við alla starfsmenn: „Gerðu þetta bara!“ Atvinnulíf Gjaldþrot olíuleitarfélags upp á 12 milljarða Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Viðskipti innlent Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Neytendur Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Neytendur Fleiri fréttir Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Sjá meira
Íslendingar kaupa sífellt minna af fötum Verslun með föt hefur dregist mikið saman frá árinu 2008 og ekkert lát er á samdrættinum. Í maí dróst verslunin saman um 5% miðað við sama mánuð síðasta árs. Í apríl var samdrátturinn 13%. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka. 18. júní 2012 12:54