Samkeppnishæfni Íslands hverfur með kolefnisgjaldi Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 22. nóvember 2011 18:57
Forsendur fyrir rekstri járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga bresta ef fyrirhugað kolefnisgjald verður lagt á segir forstjóri Elkem á Íslandi. Hann segir samkeppnishæfni Íslands í iðnaðinum hverfa því hráefni verða skattlögð sem ekki er gert í öðrum löndum. Á forsíðu fréttablaðsins í dag er greint frá því að forstjóri íslenska kísilfélagsins sé verulega hræddur um að ef fyrirhugað kolefnisgjald verði lagt á fyrirtæki um áramótin muni fjárfestar í kísiliðnaði hætta við byggingu kísilvera. Í fréttum okkar í gær greindum við frá því að kolefnisgjaldið myndi kosta flugfélag Íslands fimmtíu milljónir króna á næsta ári sem hefði bein áhrif á miðaverð. Nú hefur Elkem á Íslandi jafnframt lýst því yfir að ef af skattlagningunni verði séu allar forsendur fyrir rekstri járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga brostnar. „Ef við horfum á þróunina eins og henni er lýst í athugasemdumvið frumvarpið þá erum við komin í tvöfaldan meðalhagnað síðustu ellefu ára og þannig er bara búið að kippa rekstrargrunninum undan fyrirtækinu algerlega," segir Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem á Íslandi. Hann segir eigandann því koma til með að þurfa að borga með verksmiðjunni. „Það segir sig sjálft hvaða afleiðingar það hefur." Kolefnisgjaldið er hins vegar í takt við þróun útblástursgjalda um alla evrópu. Einar segir hins vegar frumvarpið einnig gera ráð fyrir skattlagningu á kolefni sem hráefni. „Á Íslandi á að skattleggja þetta hráefni sérstaklega sem ekki er gert hjá samkeppnisaðilum okkar. Þar af leiðandi er samkeppnishæfni okkar til að framleiða kísiljárn ekki til staðar lengur."
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira