Peningamál Seðlabankans: Lítið dregur úr atvinnuleysi á næstu mánuðum 22. apríl 2011 12:07 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri
Seðlabankinn gerir ráð fyrir að lítið dragi úr atvinnuleysi á næstu mánuðum því enn séu fleiri fyrirtæki að segja upp fólki en ráða fólk. Spá Seðlabankans um atvinnuhorfur er þó bjartsýnni en nýleg spá forstöðumanns greiningardeildar Danske Bank. Þetta kemur fram í peningamálum, efnhagsriti Seðlabankans. Þar segir að þróun á vinnumarkaði hafi að undanförnu verið í samræmi við sýn bankans í síðasta riti Peningamála sem kom út í febrúar síðastliðnum. Enn séu fleiri fyrirtæki sem íhugi að segja upp fólki en að ráða fólk. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi hafi aukist lítillega eftir að hafa minnkað um tíma á síðasta ári. Meiri launahækkanir og lakari hagvaxtarhorfur geri það að verkum að nú sé gert ráð fyrir að atvinnuleysi hjaðni hægar en áður var talið. Þar fari saman áhrif minni efnahagsumsvifa og hærri launakostnaðar á vinnuaflseftirspurn. Einnig gæti minni umsvifa á vinnuframboð, til dæmis vegna tapaðrar þekkingar vinnuaflsins og minni getu vinnumarkaðar við að leiða saman starfsfólk með ákveðna þekkingu og fyrirtæki sem þurfi á slíkri þekkingu að halda. Nú telur Seðlabankinn að atvinnuleysi verði um 7,7% að jafnaði á þessu ári en lækki síðan í um 5% árið 2013 sem er um einu prósenti meira en gert var ráð fyrir í febrúarspánni. Þótt gert sé ráð fyrir að atvinna aukist á ný á fyrra hluta þessa árs verði fjölgun starfa hægari en framleiðslubatinn og atvinnustigið því nokkru lægra. Spá Seðlabankans er þó nokkuð jákvæðari en greining Lars Christensen forstöðumanns greiningardeildar Danske Bank í síðustu viku. Þó Christensen hafi bent á að efnahagur á Íslandi væri að mörgu leyti á batavegi þá var hann ekki eins bjartsýnn á að atvinnuhorfur landsins. Hann taldi að atvinnuleysi myndi haldast að mestu óbreytt næstu þrjú árin eða nálægt tíu prósentum.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Sjá meira