IFS greining spáir 0,75 prósentustiga vaxtalækkun 28. janúar 2011 13:56
IFS greining segir að öll rök séu fyrir 75 punkta lækkun stýrivaxta (veðlánavaxta) í febrúar sem stæðu þá í 3,75%. Stýrivaxtafundur Seðlabanka Íslands verður haldinn næsta miðvikudag, 2. Febrúar. Í spá IFS segir að vaxtaákvörðunin velti þó mikið á áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna en til stendur að birta áætlun um afnám þeirra í lok febrúar eða byrjun mars. „Einnig gerum við ráð fyrir að Seðlabankinn þrengi ekki vaxtaganginn (sjá mynd) frekar í þetta skiptið líkt og hann gerði við síðustu ákvörðun. Gangi spáin eftir og Seðlabankinn breyti vöxtum jafnt verða vextir á viðskiptareikningum lánastofnanna 2,75% og hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 3,50%," segir IFS. „Við gerum ráð fyrir því að afnám gjaldeyrishafta verði framkvæmt í smáum skrefum þegar hættan á óstöðugleika og útflæði gjaldeyris hefur verið lágmörkuð. Verði sú raunin er að okkar mati ekki ástæða til að halda vöxtum háum og gætu þeir verið lækkaðir meira og á svipuðum hraða og verið hefur. Ákveði Seðlabankinn hins vegar að ráðast hratt í afnám hafta teljum við nauðsynlegt að hækka vexti til að styðja við gengið." Þá kemur fram að 0nnur rök fyrir stýrivaxtalækkun í næstu viku eru hversu hratt verðbólgan hefur hjaðnað. Hún hefur hjaðnað hraðar en flestir bjuggust við og er 12 mánaða verðbólga komin niður í 1,8% í janúar. Fjárfestingar eru í lágmarki og framleiðsluslaki er mikill, atvinnuleysi fer hækkandi og verðbólga er á hraðri niðurleið. Einnig kæmi vaxtalækkun sér vel fyrir skuldsett heimili og fyrirtæki. Raunstýrivextir á Íslandi eru jákvæðir (+2,7%) en hafa verið neikvæðir í BNA (-1,25%) frá seinni hluta 2009 og á evrusvæðinu (-1,2%) frá ársbyrjun 2010. Að mati IFS eru raunstýrivextir á Íslandi enn of háir. „Lækkun gengis krónunnar frá síðustu vaxtaákvörðun er ekki líkleg til að hafa áhrif á ákvörðun vaxta nú að okkar mati. Lækkun undanfarna tvo mánuði er hægt að rekja til útflæðis vaxtagreiðslna, gjaldeyriskaupa S.Í. og árstíðarbreytinga í ferðamannaiðnaðinum. Þess vegna teljum við líklegt að lækkun gengis gangi fljótlega til baka," segir IFS greining.
Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira