Ríkislögreglustjóri rannsakar kostnað vegna „dótakassa" FL Group Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. janúar 2011 18:52
Meintum skattalagabrotum vegna yfirdrifins rekstrarkostnaðar FL Group á árinu 2007 verður vísað til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Málið snýst m.a um kostnað vegna hlunninda starfsmanna, eins og leigu á glæsibílum. FL Group var í góðærinu eitt stærsta fjárfestingarfélag á Íslandi með gífurleg umsvif og fékk Hannes Smárarson forstjóri því mikla athygli. Eftir bankahrun tapaði félagið 350 milljörðum króna, mest af því vegna hruns Glitnis og nafninu var breytt í Stoðir. Núna eru Stoðir ein skrifstofa í Hátúni mig með aðeins tvo starfsmenn. Júlíus Þorfinnson, framkvæmdastjóra, sem var áður talsmaður FL Group auk starfsmanns sem er honum til aðstoðar. Stöð 2 óskaði eftir viðtali við Júlíus en hann varð ekki við því. Þá fékkst heldur ekki leyfi til þess að mynda skrifstofuna. Margt vafasamt í rekstrinum Margt þótti vafasamt í rekstri FL Group fyrir hrun m.a 6,2 milljarða króna rekstrarkostnaður á árinu 2007, sem aldrei hefur fengist fullnægjandi skýring á. Vilhjálmur Bjarnason lektor við HÍ var hluthafi í FL Group og bað um skýringar á þessu á aðalfundi en það var fátt um svör. Hann fékk síðan bréf frá félaginu þar sem félagið gat t.d ekki tjáð sig um greiðslur til félags í eigu Jóns Þórs Sigurðssonar, sem rak glæsibílaleigu fyrir FL Group. Það sem í viðskiptaheiminum var kallað „dótakassi." Þá gat félagið heldur ekki upplýst um kostnað vegna flugferða starfsmanna. „Þetta var allt svona. Það var t.d rekstrarkostnaður vegna dótakassa sem ég kallaði, rekstrarkostnaður upp á hundruð milljóna króna, sem ég fékk ekki nákvæm svör vegna," segir Vilhjálmur. Stöð 2 fékk staðfest í dag að mál vegna þessa mikla rekstrarkostnaðar væri á leiðinni inn á borð efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og að það færi þangað til rannsóknar vegna meintra skattalagabrota, en embætti skattrannsóknarstjóra hefur haft það til umfjöllunar. Efnahagsbrotadeildin hefur haft FL Group til rannsóknar vegna annarra mála, t.d viðskipta með Sterling flugfélagið og nú mun þetta mál bætast við.Segir Júlíus hafa logið á launumEftir nauðasamninga eignuðust kröfuhafar Stoða félagið. Stærstir eru Landsbankinn, skilanefnd Glitnis og Arion banki. Endurskoðendurnir Ernst & Young voru fengnir til að fara yfir viðskipti sem áttu sér stað fyrir greiðslustöðvun FL Group og mæltu með fjöldanum öllum af viðskiptum sem þeir töldu að skoða þyrfti nánar. Það var á endanum niðurstaðan að fara í fjögur minniháttar riftunarmál. Vilhjálmur segir það sárt. Þá gerir hann einnig athugasemdir við að fyrrverandi talsmaður FL Group sé nú framkvæmdastjóri Stoða. Sjá má viðtal við Vilhjálm í myndskeiði með fréttinni þar sem hann segir að framkvæmdastjóri Stoða hafi logið á launum fyrir FL Group.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Sjá meira