Íslenskir framleiðendur tölvuleikja velta 10 milljörðum 15. febrúar 2011 11:17 Forsíðugrein janúartölublaðs eins virtasta tölvuleikjatímarits heims, PC Gamer, fjallar um EVE Online.
Tólf fyrirtæki með um 600 starfsmenn á Íslandi framleiða tölvuleiki og er ársvelta þeirra um 10 milljarðar króna. Þetta er meðal þess sem kom fram á menntadegi iðnaðarins í máli Ólafs Andra Ragnarssonar en hann er einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Betware auk þess að kenna í Háskólanum í Reykjavík. Fjallað er um málið á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að Betware var m.a. útnefnt frumkvöðull ársins 2010 af Viðskiptablaðinu en stafræna byltingin og netið hafa skapað einstök tækifæri og leikjaframleiðendur hér á landi hugsa hátt. Þeir benda á að ef rétt verður að málum staðið megi ná því markmiði árið 2021 að starfsmenn í íslenskum leikjaiðnaði verði um fimm þúsund og þeir skapi um 70 milljarða króna útflutningsverðmæti. Ólafur Andri segir þó að til að ná þessu háleita markmiði þurfi rétt skilyrði og nefnir þar fyrst efnahagslegan stöðugleika. En það þarf fleira að koma til að mati Ólafs til að byggja upp öflugan tölvuleikjaiðnað á Íslandi, m.a. stuðningur við sprotafyrirtæki og gott samfélag. Hann segir tölvuleikjaframleiðendur á Íslandi þurfi ekki að hafa áhyggjur af fjarlægð við markaði en þeir verði að eiga aðgang að vel menntuðu fólki til starfa. Háskólinn í Reykjavík býður upp á svokallaða leikjalínu í tölvunarfræðum þar sem er lögð áhersla á fög sem tengjast leikjum og leikjagerð. Ólafur segir að nýta megi betur þann kraft og tíma sem fólk ver í að spila tölvuleiki m.a. til ýmis konar náms. Í erindi hans kom fram að þeir sem eru 21 árs í dag eru að jafnaði búnir að eyða um 10 þúsund klukkustundum í tölvuleiki - jafnlöngum tíma og í grunnskóla. Einnig nefndi Ólafur þá merku staðreynd að mannkynið hafi eytt 5,93 miljónum ára í að spila leikinn World of Warcraft sem er jafnlangur tími og það tók mannkynið að þróast frá apa yfir í þá tegund sem nú gengur um á jörðinni.
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fleiri fréttir Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Sjá meira