Viðskipti innlent

Erfiðlega gæti reynst að finna fordæmisgildi

Fyrirtæki eiga sama rétt á endurútreikningi eins og einstaklingar vegna ólögmætra gengistryggðra lána til fasteignakaupa samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar. Frjálsi fjárfestingabankinn þarf að endurreikna höfuðstól 500 fyrirtækjalána til viðbótar, sem skipta milljörðum.

Einkahlutafélagið Tölvupósturinn tók lán hjá Frjálsa fjárfestingabankanum til húsnæðiskaupa 2007. Félagið taldi sig hafa ofgreitt af láninu og lýsti kröfum sínum til slitastjórnar Frjálsa sem var hafnað. Tölvupósturinn höfðaði svo mál á hendur Frjálsa. Ágreiningur þeirra snérist um hvort fasteignalánið hefði verið í íslenskri eða erlendri mynt. Frjálsi hélt því fram að lánið væri í erlendri mynt en Tölvupósturinn í íslenskum krónum.

Hæstiréttur úrskurðaði í gær að lánið væri ólögmætt gengistryggt fasteignalán og vísaði í eldri dóm þess efnis. Nú er Frjálsi fjárfestingarbankinn að endurreikna um 2500 ólögmæt lán til einstaklinga. Við dóminn í gær bætast við um 500 fyrirtækjalán sem skipta milljörðum. Alls þarf bankinn að endurreikna lán sem nema allt að hundrað milljörðum.

Magnús Pálmarsson, talsmaður Frjálsa, segir að bankinn hefji endurútreikning gengistryggðra fasteigna lána fyrirtækja og gengið verði frá þeim málum eins fljótt og unnt er.

En hvað segir efnahags og viðskiptaráðherra um dóminn? „Hann staðfestir að það sem löggjafinn gerði fyrir jól var hárétt. Það er að segja að það sama gildi í grundvallaratriðum um gengistryggð íbúðalán og gengistryggð bílalán," segir Árni Páll Árnason. Dómurinn hafi því ekki áhrif á lögin sem samþykkt voru á síðasta ári.

Hins vegar geti reynst erfitt að finna fordæmisgildi gagnvart öðrum fyrirtækjalánum. Dómstólar verða að skera úr um þá. „Það er ekki alveg hægt að ráða af dómnum hvað þetta þýðir fyrir fyrirtækjalán að öðru leyti," segir Árni Páll.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×