Seldu minkaskinn fyrir 160 milljónir í Kaupmannahöfn 15. febrúar 2011 14:47
Íslenskir loðdýraræktendur gerðu góða ferð til Kaupmannahafnar í dag. Á uppboði hjá Kopenhagen Fur seldust um 20.000 minkaskinn fyrir tæpar 160 milljónir kr. Meðalverð á skinn hefur aldrei verið hærra. Björn Halldórsson formaður Sambands íslenskra loðdýraræktenda segir að meðalverðið hafi verið 375 danskar kr. á skinn eða um 7.900 krónur. „Ég ræddi við nokkra sem eru gamlir í hettunni á þessum uppboðum og þeir sögðu allir að það hefði verið einstakt hvað verð á skinnunum varðar," segir Björn þar sem við náðum tali af honum á Hvids Vinstue eftir uppboðið. Í máli Björns kemur fram að það hafi einkum verið Kínverjar sem buðu hátt verð í skinnin. Helgast það af því að á næstunni munu um 700 nýjar verslanir með pelsa og skinnvörur opna í Kína og að eigendur þeirra hafi verið að afla sér birgða fyrir þær. „Svo komu Rússar einnig sterkt inn á þessu uppboði," segir Björn. Útlitið er mjög gott fyrir íslenska loðdýrabændur í ár því ekki er útlit fyrir að verð á minkaskinnum muni lækka frá í fyrra en meðalverðið þá fyrir íslensku skinnin nam ríflega 320 dönskum kr. Næsta uppboð hjá Kopenhagen Fur er í apríl og reiknar Björn með að 30 til 40.000 íslensk skinn verði seld á því og síðan álíka magn á uppboðinu í júní. Í fyrra seldu íslenskir minkabændur skinn fyrir yfir 1,1 milljarð kr. á þessum uppboðum í Kaupmannahöfn.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira