New York á Einari Ben 9. mars 2011 00:01 Stefán Baldvin Guðjónsson hjá Einari Ben. Mynd/Valli
Veitingahúsið Einar Ben hefur allt frá upphafi Food and Fun tekið þátt í hátíðarhöldunum. Í ár verður sannkölluð New York stemning á veitingastaðnum en einn af þekktari matreiðslumönnum Stóra eplisins mætir þar til leiks. „Matarævintýrin sem hægt er að upplifa á Food and Fun eru einstök að því leyti að þú getur hugsanlega ekki upplifað slíkt ævintýri aftur á ævinni. Það eru til að mynda ekki margir sem hafa efni á því að fara alla leið til New York og borða hjá John Mooney sem kemur og eldar fyrir Íslendinga hjá okkur á Einari Ben,“ segir Stefán Baldvin Guðjónsson hjá veitingastaðnum. Þangað mætir John Mooney, sem þekktastur er fyrir veitingastað sinn Bell Book and Candle í New York, og reiðir fram spennandi rétti. Bell Book and Candle er einstakur veitingastaður en John Mooney er einn af stofnendum og eigendum staðarins. Stolt Bell Book and Candle er meðal annars garður á þaki veitingahússins þar sem Mooney ræktar grænmeti og kryddjurtir sem notaðar eru í rétti hússins. Mikið hefur verið skrifað um staðinn í þekkt tímarit svo sem Food & Wine Magazine, en hægt er að nota afurðir garðsins um tíu mánuði á ári. „Mooney stólar á ferskmeti, lífrænt ræktað grænmeti, ávexti, ferskt sjávarfang og kjöt af nýslátruðu. Þessir þættir verða því í aðalhlutverki í matreiðslu hans, úr íslensku eðalhráefni og það verður virkilega spennandi að sjá hvað hann reiðir fram. Gestir fá tækifæri til að upplifa New York eins og hún er upp á sitt besta og hráefnið eins ferskt og heilsusamlegt og getur orðið,“ segir Stefán.
Food and Fun Veitingastaðir Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning